Uppáhalds farðinn
Núna ætla ég að fjalla um yndið mitt eina. Estée Lauder Double Wear meikið mitt er algjör lifesaver. Þetta meik hef ég keypt aftur og aftur og aftur. Sjálf hef ég prófað margar aðrar tegundir af meiki, allt frá Chanel, MAC, Revlon, Nivea og þú getur bara nefnt það! En alltaf finn ég ást mína á áferðina sem ég fæ frá Estée Lauder Double Wear.
Þekja: Medium-Full
Húðtegundir: Allar
50 ml í flösku
Mörg meik eiga það til vekja "break outs" á húðinni en ég hef aldrei lent í því með Estée Lauder Double Wear. Meikið er með sólarvörn 10 og er því mjög hentugt í birtu. Meikið er með miðlungs-mikla þekju og hentar einstaklega vel olíuríkri húð. Sjálf er ég með olíuríka húð en þó mjög viðkvæma. Áferðin er mjúk og semí-mött en þekjan getur verið mjög sterk svo að kinnalitur og/eða bronzer er must. Meikið endist allan daginn án þess að renna og er líka kallað "Stay-in-Place Makeup" og ekki af ástæðulausu!
Litaúrvalið er frábært utan Íslands en ég tel að það eru aðeins um 6 litategundir á Íslandi sem hægt er að nálgast. Meikið er þó nokkuð dýrt, um 6-7 þúsund krónur en ég hef alltaf viljað splörgja á það afþví að það hefur reynst mér svo vel.
Ef að meikið hljómar eins og það henti þér, endilega farðu í næstu Lyfju eða Hagkaup og fáðu prufu. Þú ættir að fá prufu sem að endast þér í 2-5 daga ef það er notað rétt og ath. að bera ekki á of mikið í eina því minna er meira!
xoxo
No comments:
Post a Comment