Wednesday, May 9, 2012

Topp 5 kinnalitirnir mínir

Pink Swoon

    



Svo mjúkur, baby-pink kinnalitur. Yndislegur og gefur frábæran hversdags ljóma þegar maður þarf á því að halda. Kinnaliturinn er Sheertone og er því með léttum gljáa en þó ekki glimmeraður. Hann er því hentugur í dagsljósi og líka um kvöld því að hann þvæst ekki alveg út ef þú ætlar út um kvöldið og taka skal myndir þá sést kinnaliturinn afþví að hann er á milli því að vera mattur og glimmeraður. Ég nota þennan kinnalit á hverjum degi og er kominn á 2 þeirra núna. Elska, elska, elska hann. Ef þú vilt fá þér gæða kinnalit í fallegasta bleika litnum sem að þú sérð í MAC. Þá endilega kíktu á Pink Swoon.


Shimmer Waves Blush


Gordjöss glimmeraður kinnaliturinn sem gefur mjúkan ljóma á heitum sumardegi. Þessi kinnalitur minnir mig alltaf á sumar og sól! Hann skiptist í fimm tegundir af ljómandi kinnalitum og saman blandast þeir frábærlega. Neðst er ljós ,,highlighter" sem að veitir ljóma sem að stækkar kinnbeinin. Tveir kinnalitahlutarnir eru með bronzaðann ferskju tón og hinir tveir sem eftir eru bera hlýjan bleikann tón. Ég varð ástfanginn af þessum kinnalit síðasta sumar og bar hann hvern einasta dag. Endilega tjékkaðu á honum ef þú vilt kinnalit sem inniheldur frískleika og sumarlegan ljóma.

Fleur Power


Hlýr kórall-bleikur kinnalitur. Fleur Power er með satin áferð sem er meira mött áferð en glimmeruð. Kinnaliturinn er ótrúlega vel pigmentaður og ef ekki er farið varlega þá getur maður endað eins og trúður! Kinnaliturinn endist allan daginn og er gullfallegur á myndum. Vegna þess að hann er mattur, sést hann mjög vel á myndum og hentar því ótrúlega vel ef þú ert að fara út á næturlífið. Hann er endilega kinnalitur sem sniðugt er að kíkja á!

Harmony



Þessa elsku nota ég á hverjum degi. Kinnaliturinn er fullkominn  til þess að skyggja andlitið og er mesta kraftaverk sem ég hef fundið. Settu hann undir kinnbeinin og það er eins og þú hafir lést um nokkur kíló í smettinu! Algjört æði! Frábær að næturlagi og hlýlegur á daginn. Mött áferð og mjög vel pigmentaður og því skal fara varlega þegar hann er borinn á. Þessi kinnalitur er "my holy grail" get ég með sanni sagt. 

02 Shades of Pink


Vetrarliturinn minn kæri. Nivea Stay Real kinnaliturinn í 02 Shades of Pink. Kynntist þessari elsku í London í desembermánuði í fyrra. Systir mín átti hann og ég gleymdi að taka með mér kinnalit og fékk að prófa hann hjá henni. Þvílík snilld! Kóral-bleikur og gullfallegur! Vekur hlýju, mýkt og ljóma á ljósri vetrarhúð og þú getur ekki gert mistök með þessum kinnalit. Plús það að hann er alls ekki dýr og fæst útum allt. 

xoxo

Uppáhalds farðinn

Núna ætla ég að fjalla um yndið mitt eina. Estée Lauder Double Wear meikið mitt er algjör lifesaver. Þetta meik hef ég keypt aftur og aftur og aftur. Sjálf hef ég prófað margar aðrar tegundir af meiki, allt frá Chanel, MAC, Revlon, Nivea og þú getur bara nefnt það! En alltaf finn ég ást mína á áferðina sem ég fæ frá Estée Lauder Double Wear.
Þekja: Medium-Full 
Húðtegundir: Allar
50 ml í flösku


Mörg meik eiga það til vekja "break outs" á húðinni en ég hef aldrei lent í því með Estée Lauder Double Wear. Meikið er með sólarvörn 10 og er því mjög hentugt í birtu. Meikið er með miðlungs-mikla þekju og hentar einstaklega vel olíuríkri húð. Sjálf er ég með olíuríka húð en þó mjög viðkvæma. Áferðin er mjúk og semí-mött en þekjan getur verið mjög sterk svo að kinnalitur og/eða bronzer er must. Meikið endist allan daginn án þess að  renna og er líka kallað "Stay-in-Place Makeup" og ekki af ástæðulausu! 
Litaúrvalið er frábært utan Íslands en ég tel að það eru aðeins um 6 litategundir á Íslandi sem hægt er að nálgast. Meikið er þó nokkuð dýrt, um 6-7 þúsund krónur en ég hef alltaf viljað splörgja á það afþví að það hefur reynst mér svo vel. 
Ef að meikið hljómar eins og það henti þér, endilega farðu í næstu Lyfju eða Hagkaup og fáðu prufu. Þú ættir að fá prufu sem að endast þér í 2-5 daga ef það er notað rétt og ath. að bera ekki á of mikið í eina því minna er meira! 


xoxo

Húðslit?

Húðslit. Þekkt andstyggileg sjálftrausts-suga sem að hrjáir kvenmenn. Húðslit myndast þegar húðin teygist og slitnar við m.a. mikla líkamsrækt og vöðvabyggingu, breytingar á kynþroskaskeiði, þungun og fljóta þyngjun.


Hvað ef ég segði þér að þú gætir lýst upp húðslitin með eitthverju sem þú finnur í eldhússkápnum? Ef ég segði þér að það myndi gera húðina stinnri og örin ljósari? Átt þú kókosolíu?



Notaðu hana þá í meira en eldamennsku og færðu hana inn á bað. Kókosolía inniheldur E-vítamín sem heldur húðslitum á bug þegar þungun stendur yfir og lýsir upp húðslit. Berðu á þig kókosolíu 2-3 sinnum á dag eftir því hversu dökk örin eru og eftir 14 daga muntu sjá svakalegan mun. 
Sjálf hef ég verið óörugg með eigin húðslit á innri lærum og hef verið að nota þetta núna í 1 mánuð. Ég sá og fann ótrúlega mun, húðin varð stinnri og mýkri. Húðslitin ljósari og varla sjáanleg. Ég er ótrúlega ánægð með niðurstöðuna og get næstum fullyrt að þú ættir að verða það líka. 
Auðvitað hentar ekki allt öllum og 75%-90% kvenna fá ætíð slit við þungun. En ef að það er árangur fyrir hendi þá er alltaf sniðugt að reyna nýjar aðferðir. Sérstaklega afþví að þetta er ódýr kostur og fæst í hverri matvörubúð. Núna er bara að maka þessu á sig og sjá hvernig gengur.






xoxo