Pink Swoon
Svo mjúkur, baby-pink kinnalitur. Yndislegur og gefur frábæran hversdags ljóma þegar maður þarf á því að halda. Kinnaliturinn er Sheertone og er því með léttum gljáa en þó ekki glimmeraður. Hann er því hentugur í dagsljósi og líka um kvöld því að hann þvæst ekki alveg út ef þú ætlar út um kvöldið og taka skal myndir þá sést kinnaliturinn afþví að hann er á milli því að vera mattur og glimmeraður. Ég nota þennan kinnalit á hverjum degi og er kominn á 2 þeirra núna. Elska, elska, elska hann. Ef þú vilt fá þér gæða kinnalit í fallegasta bleika litnum sem að þú sérð í MAC. Þá endilega kíktu á Pink Swoon.
Shimmer Waves Blush
Gordjöss glimmeraður kinnaliturinn sem gefur mjúkan ljóma á heitum sumardegi. Þessi kinnalitur minnir mig alltaf á sumar og sól! Hann skiptist í fimm tegundir af ljómandi kinnalitum og saman blandast þeir frábærlega. Neðst er ljós ,,highlighter" sem að veitir ljóma sem að stækkar kinnbeinin. Tveir kinnalitahlutarnir eru með bronzaðann ferskju tón og hinir tveir sem eftir eru bera hlýjan bleikann tón. Ég varð ástfanginn af þessum kinnalit síðasta sumar og bar hann hvern einasta dag. Endilega tjékkaðu á honum ef þú vilt kinnalit sem inniheldur frískleika og sumarlegan ljóma.
Fleur Power
Hlýr kórall-bleikur kinnalitur. Fleur Power er með satin áferð sem er meira mött áferð en glimmeruð. Kinnaliturinn er ótrúlega vel pigmentaður og ef ekki er farið varlega þá getur maður endað eins og trúður! Kinnaliturinn endist allan daginn og er gullfallegur á myndum. Vegna þess að hann er mattur, sést hann mjög vel á myndum og hentar því ótrúlega vel ef þú ert að fara út á næturlífið. Hann er endilega kinnalitur sem sniðugt er að kíkja á!
Harmony
Þessa elsku nota ég á hverjum degi. Kinnaliturinn er fullkominn til þess að skyggja andlitið og er mesta kraftaverk sem ég hef fundið. Settu hann undir kinnbeinin og það er eins og þú hafir lést um nokkur kíló í smettinu! Algjört æði! Frábær að næturlagi og hlýlegur á daginn. Mött áferð og mjög vel pigmentaður og því skal fara varlega þegar hann er borinn á. Þessi kinnalitur er "my holy grail" get ég með sanni sagt.
02 Shades of Pink
Vetrarliturinn minn kæri. Nivea Stay Real kinnaliturinn í 02 Shades of Pink. Kynntist þessari elsku í London í desembermánuði í fyrra. Systir mín átti hann og ég gleymdi að taka með mér kinnalit og fékk að prófa hann hjá henni. Þvílík snilld! Kóral-bleikur og gullfallegur! Vekur hlýju, mýkt og ljóma á ljósri vetrarhúð og þú getur ekki gert mistök með þessum kinnalit. Plús það að hann er alls ekki dýr og fæst útum allt.
xoxo





No comments:
Post a Comment